Stefnir hf. hefur skipt sjóðum sem það rekur í sjö flokka. Flokkunin byggist á mati á því hversu mikilla sveiflna í ávöxtun má vænta í framtíðinni, en flokkunin mælir aftur á móti ekki almenna áhættu við að fjárfesta í sjóðum. Matið byggir á sögulegum sveiflum þeirra fjármálagerninga sem sjóðirnir fjárfesta í. Sjóðir þar sem sveiflur í ávöxtun eru litlar fá stig 1 af 7, en þeir sjóðir þar sem sveiflur í ávöxtun er mest fá stig 7 af 7. Flokkun sjóðs getur breyst ef sveiflur undirliggjandi fjármálagerninga breytast.
Flokkunin byggir á staðalfráviki sögulegrar ávöxtunar sem er mælikvarði á sveiflur í ávöxtun. Um er að ræða vikulega ávöxtun sjóða. Niðurstöður staðalfráviksins gefa ákveðin öryggismörk sem leiða til flokka 1 til 7. Flokkur 1 endurspeglar því útreiknað staðalfrávik ávöxtunar á bilinu 0,00%-0,40% á viku, flokkur 2: 0,41%-0,80%, flokkur 3: 0,81%-1,30%, flokkur 4: 1,31%-1,80%, flokkur 5: 1,81%-2,30%, flokkur 6: 2,31%-3,0% og flokkur 7: ≥3,01% .
Áhættumælikvarðinn er ekki fullkomin lýsing á þeirri áhættu sem fylgir fjárfestingu í sjóðnum. Þannig er ekki tryggt að sögulegar sveiflur í ávöxtun sjóðs gefi greinargóða lýsingu á mögulegum framtíðarsveiflum. Einnig ber að nefna að hugsanlegt greiðslufall útgefanda fjármálagerninga sem sjóðurinn hefur fjárfest í er ekki best lýst með greiningu á sögulegum sveiflum í ávöxtun. Það ber því að taka flokkun sjóða eftir mismunandi stigum áhættumælikvarðans með þeim fyrirvörum sem nefndir eru að ofan.
Flökt er reiknað út frá vikulegri ávöxtun fyrir árin 2009-2010-2011
Vegna gjaldeyrishafta eru gengisvarnir þriggja sjóða óvirkar og fylgja þeir því flokkun sambærilegra óvarinna sjóða.
- Kaupthing Manager Selection - Global Equity ISK Fylgir Kaupthing Manager Selection - Global Equity EUR
- Stefnir - Erlend hlutabréf ISK Fylgir Stefnir - Erlend hlutabréf EUR
- Kaupthing Manager Selection - BRIC Fund ISK Fylgir Kaupthing Manager Selection - BRIC Fund EUR