Stefnir - Eignastýringarsjóður

Fyrir hverja?

  • Þá sem fjárfesta til þriggja ára eða lengur og þola sveiflur í ávöxtun
  • Þá sem vilja virka stýringu ríkisskuldabréfa með möguleika á fjárfestingu í öðrum eignaflokkum
  • Enginn binditími, innlausn með tveggja daga fyrirvara
  • Hentar bæði einstaklingum og fyrirtækjum

Eignasamsetning

Ávöxtun

 Rekstrarform:     Fjárfestingarsjóður
 Stýring:   Stefnir hf.
 Sjóðstjóri  Magnús Örn Guðmundsson
 Gjaldmiðill:  ISK
 Stofnár:      1986
 Gengismunur:  1%
 Umsýsluþóknun:  1,45%
 Lágmarksfjárfesting:  10.000 kr. einstök kaup - 5.000 kr. í áskrift
 Viðskiptatími:  9:30 - 14:00
 Uppgjörstími:  2 virkir dagar
 Afgreiðslugjald:  450 kr. / 0 kr. í áskrift og netbanka
 Vörsluaðili:  Arion banki
Stefnir - Eignastýringarsjóður

Sjóðurinn er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Stefnir hf.

Sjóðurinn er ætlaður almenningi sem og fagfjárfestum, s.s. lífeyrissjóðum og fyrirtækjum, sem velja sér fjárfestingakosti sem fela í sér sjóði um sameiginlega fjárfestingu með dreifðu eignasafni verðbréfa og öðrum fjármálagerningum í rekstri og umsjón fagaðila skv. lögum og eftirliti sem um slíkan sjóð gildir á hverjum tíma. Fjárfesting í hlutdeildarskírteinum sjóða um sameiginlega fjár-festingu er að jafnaði öruggari en þegar keypt eru einstök verðbréf þar sem sjóðir dreifa áhættu fjárfesta með kaupum á fleiri en einum flokki verðbréfa.

Öll viðskipti með fjármálagerninga, þ.m.t. hlutdeildarskírteini sjóðsins, eru áhættusöm. Ávöxtun hlutdeildarskírteina sjóðsins kann að sveiflast mjög frá einum tíma til annars. Þá getur verðmæti hlutdeildarskírteina getur rýrnað og fjárfestar tapað fjárfestingu sinni að hluta eða öllu leyti.

Áhættuflokkun

Stefnir hf. hefur skipt sjóðum sem það rekur í sjö flokka. Flokkunin byggist á mati á því hversu mikilla sveiflna í ávöxtun má vænta í framtíðinni, en flokkunin mælir aftur á móti ekki almenna áhættu við að fjárfesta í sjóðum.

Áhætta tengd fjármálagerningum

Margvísleg atriði geta valdið verðlækkun á fjármálagerningum sem sjóðurinn hefur fjárfest í og þar með á gengi hlutdeildarskírteina í sjóðnum, s.s. ófyrirséðir atburðir og almennt efnahagsástand. Einnig getur ný eða breytt löggjöf Alþingis haft áhrif á gengi hlutdeildarskírteina, s.s. breytingar á skattalögum eða á lögum um auðlindargjald í sjávarútvegi. Þá má og geta svokallaðrar seljanleikaáhættu, þ.e. áhættan á að ekki reynist unnt að selja verðbréf þegar vilji stendur til. Áhættan birtist bæði með þeim hætti að markaðurinn geti ekki tekið við því magni sem til stendur að selja þar sem kaupendur vantar, en einnig er verðmyndun oft með þeim hætti að verulegur munur er á kaup- og sölugengi og því næst ekki sá árangur við sölu sem vænst hafði verið. Því dreifðara sem safn verðbréfa er, því minni áhætta er almennt talin fólgin í því.

Afleiðunotkun

Sjóðurinn hefur heimild til að binda fé sitt í afleiðum samkvæmt þeim skilyrðum sem sett erum samkvæmt lögum nr. 128/2011, sbr. einkum 5. og 6. tl. 30. gr. og 34. gr. laganna. Viðskipti með afleiður geta dregið úr áhættu sjóðsins, s.s. endurfjárfestingar- og vaxtaáhættu. Viðskiptin geta einnig virkað á svipaðan hátt og stöðutaka í viðkomandi fjármálagerningi og þannig aukið áhættu sjóðsins.


Afleiður sjóðsins geta verið í formi framvirkra samninga. Í tilviki framvirkra samninga skuldbindur sjóðurinn sig til þess að eiga viðskipti með fjármálagerninga á fyrirfram ákveðnu verði og tíma í framtíðinni. Þannig myndast skuldbinding í sjóðnum vegna þessara framtíðar viðskipta. Verðmæti framvirka samningsins sveiflast svo með breytingu á gengi undirliggjandi eignar og hefur þannig áhrif á innra virði sjóðsins.

Aðrar áhættur tengdar fjárfestingu í sjóðnum

1. Markaðsáhætta vísar til þeirra áhrifa sem hugsanlegar breytingar á gengi fjármálagerninga getur haft á gengi sjóðsins. Fjármálagerningar í eðli sínu sveiflast í verði og getur gengi þeirra bæði hækkað sem og lækkað sem skilar sér í markaðsáhættu fyrir sjóðsfélaga.

2. Greiðsluáhætta. Þar sem sjóðurinn mun kaupa og selja fjármálagerninga af þriðja aðila er sú hætta fyrir hendi að kaupandi greiði ekki fyrir seld bréf eða að seljandi afhendi ekki bréf sem sjóðurinn hefur keypt.

3. Vörslu- og uppgjörsáhætta. Rekstrarfélag sjóðsins felur vörslufyrirtæki vörslu allra fjármálagerninga sjóðsins. Sú áhætta er fyrir hendi að slíkir fjármálagerningar glatist vegna gjaldþrots vörsluaðila, vanrækslu vörsluaðila, misnotkun hans eða svika. Sú hætta er einnig fyrir hendi að mistök eigi sér stað við uppgjör sjóðsins.

4. Frammistöðuáhætta. Markmið sjóðsins er að ná betri árangri en fyrirfram skilgreind viðmiðunarvísitala. Þar sem stýring sjóðsins telst virk getur árangur sjóðsins verið betri eða verri en áðurnefnd viðmiðunarvísitala og felur það í sér frammistöðuáhættu.

5. Áhætta höfuðstóls. Fjármálagerningar í eðli sínu geta sveiflast í verði og höfuðstóll getur því rýrnað yfir skemmri eða lengri tíma vegna sveiflna á þeim fjármálagerningum sem sjóðurinn er fjárfestur í á hverjum tíma.

6. Ytri ástæður á borð við stríð, hryðjuverk og stjórnmálalegan óstöðugleika eða annað því tengt geta haft áhrif á gengi fjármálagerninga og telst því áhættuþáttur fyrir sjóðsfélaga.

Almennur fyrirvari fjárfestingarsjóða

Fjárfestingarsjóður telst vera áhættusamari fjárfesting en verðbréfasjóður skv. lögum nr. 128/2011. Meiri áhætta fjárfestingarsjóðs er fólgin í rýmri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í verðbréfasjóði. Vakin er sérstök athygli á að almennt fylgir áhætta fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum fjárfestingarsjóða, t.d. getur fjárfesting rýrnað eða tapast að öllu leyti. Fyrri ávöxtun fjárfestingarsjóða gefur ekki vísbendingu um framtíðar ávöxtun þeirra.

Nánari upplýsingar um framangreint má nálgast í útboðslýsingu eða lykilupplýsingablaði sjóðsins á heimasíðu Stefnis.

Með setningu laga nr. 55/2011 voru gerðar breytingar til bráðabirgða á lögum nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, með síðari breytingum. Samkvæmt 5. tl. 16. mgr. ákvæðis laganna til bráðabirgða er tryggingavernd innstæðna verðbréfa- og fjárfestingarsjóða afnumin. Í lögunum kemur fram að með innstæðu er átt við inneign á reikningi í eigu viðskiptamanns hjá innlánsstofnun, að meðtöldum áföllnum vöxtum og verðbótum, og millifærslu í hefðbundinni almennri bankastarfsemi, sem innlánsstofnun ber að endurgreiða samkvæmt lögum og umsömdum skilmálum, og hlutdeild viðskiptamanns í reikningi innlánsleiðar vörsluaðila lífeyrissparnaðar hjá innlánsstofnun. Lántökur innlánsstofnunar, eiginfjárreikningar, heildsöluinnlán og safnreikningar, aðrir en reikningar innlánsleiða vörsluaðila lífeyrissparnaðar, teljast ekki til innstæðna. Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á www.tryggingarsjodur.is.

Vert er að benda á að samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 6. október 2008 eru „innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi tryggðar að fullu“. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ekki kveðið á um gildistíma. Þá kom fram í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þann 3. febrúar 2009 að fyrri yfirlýsing væri í fullu gildi og að hún yrði ekki afnumin fyrr en hið nýja íslenska fjármálakerfi hefði sannað sig og þá yrði gefinn aðlögunartími.

Bent skal á að á Alþingi hefur verið lagt fram frumvarp til laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, sem gert er ráð fyrir að nemi lög nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta úr gildi. Verði það frumvarp samþykkt, eða annað slíkt, kann það hafa í för með sér frekari breytingar á núgildandi fyrirkomulagi um innstæðutryggingar.

Rekstrarfélag sjóðanna er Stefnir hf., sem er sjálfstætt dótturfélag Arion banka með starfsleyfi sem rekstrarfélag verðbréfasjóða

Helsti söluaðili sjóða Stefnis er Arion banki, hægt er að eiga viðskipti með sjóði í næsta útibúi eða í gegnum Netbanka. Sérfræðingar verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka veita upplýsingar um sjóðina í síma 444-7000 og fyrirspurnir má senda á verdbrefathjonusta@arionbanki.is.

Við bendum á að í netbanka Arion banka er viðskiptavinum veittur 25% afsláttur af gengismun sjóða Stefnis. Enginn gengismunur er í Stefni – Ríkisvíxlasjóði og Stefni – Lausafjársjóði. 

Frekari upplýsingar um kaup í sjóðum má finna í spurt og svarað um sjóði

Upplýsingar um aðra söluaðila má finna hér.