Fjárfestingarstefna
Stefnir - Ríkisbréfasjóður óverðtryggður hs. fjárfestir í óverðtryggðum skuldabréfum og víxlum í íslenskum krónum, útgefnum af íslenska ríkinu eða með ábyrgð íslenska ríkisins. Sjóðurinn hentar einstaklingum, fyrirtækjum og stofnanafjárfestum sem vilja njóta ábyrgðar íslenska ríkissins á fjárfestingu sína en á sama tíma fjárfesta í óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.
Eignaskipting
Nafnávöxtun
Verðþróun
Fjárfestingarheimildir
Fyrirvari
Þær upplýsingar sem hér koma fram eru óendurskoðaðar.
Stefnir hf. rekur sérhæfða sjóði skv. lögum nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og verðbréfasjóði skv. lögum nr. 116/2021 um verðbréfasjóði.
Vakin er sérsök athygli á að fjárfesting í hlutdeildarskírteinum sjóða er áhættusöm og getur fjárfesting rýrnað eða tapast að öllu leyti. Sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta telst almennt vera áhættusamari fjárfesting en verðbréfasjóður. Þessi meiri áhætta er fólgin í rýmri fjárfestingarheimildum sem geta meðal annars leitt til minni áhættudreifingar en í verðbréfasjóði.
Ávöxtun er almennt sett fram sem nafnávöxtun í uppgjörsmynt hvers sjóðs að frádregnum kostnaði sem fallið hefur á sjóðinn á hverjum tíma, svo sem umsýsluþóknun, viðskiptakostnaður og annar kostnaður. Gjald við kaup og afgreiðslugjald sem er innheimt fyrir fjárfestingu er ekki innifalið í útreikningi á ávöxtun sjóðanna.
Stefnir hf. hefur skipt verðbréfa- og sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta í rekstri félagsins í sjö flokka byggt á samanteknum áhættuvísi í samræmi við II. viðauka framseldrar reglugerðar (ESB) 2017/653 og byggir hún á flökti á ársgrundvelli sem samsvarar vágildi (e. value-at-risk (VaR)) við öryggisstig 97,5% á ráðlögðum fjárfestingartíma. Flokkur 1 ber minnstu sveiflurnar í ávöxtun en flokkur 7 mestu sveiflurnar. Flokkun sjóðs getur breyst ef sveiflur undirliggjandi fjármálagerninga taka breytingum. Mælikvarðinn byggir eingöngu á sögulegum sveiflum í ávöxtun. Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um ávöxtun í framtíð og tekur ekki mið af þeim ýmsu áhættum sem verðbréfa- og sérhæfðir sjóðir fyrir almenna fjárfesta kunna að búa við í rekstri sínum. Þá kann flokkunin að breytast fyrirvaralaust. Áhættumælikvarðinn er ekki almenn lýsing á þeirri áhættu sem fylgir fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum sjóða. Öllu heldur er um að ræða tölfræðilega, hlutbundna lýsingu á eignum þeirra fjölmörgu áhættuþátta sem geta verið til staðar við fjárfestingu í slíkum fjármálagerningum. Frekari umfjöllun um helstu áhættuþætti er að finna í útboðslýsingu hvers sjóðs. Bent er á að ekki er tryggt að sögulegar sveiflur í ávöxtun sjóðs hafi forspárgildi um framtíðarsveiflur í ávöxtun hans. Jafnframt er bent á að sjóðir í flokki 1 eru ekki áhættulaus fjárfesting og engin trygging er fyrir ávöxtun upphaflegrar fjárfestingar eða fullrar innheimtu hennar.
Innstæður sjóða um sameiginlega fjárfestingu njóta ekki tryggingarverndar samkvæmt lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta
Nánari upplýsingar um sjóðinn, þar á meðal nánari upplýsingar um áhættu við fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum hans, má finna í útboðslýsingu eða lykilupplýsingum sjóðsins sem nálgast má í útibúum Arion banka eða á www.stefnir.is/sjodir.