Fjölmiðlar
15. maí 2017
Anna Kristjánsdóttir nýr forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni
Anna Kristjánsdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns skuldabréfa hjá Stefni. Anna er einn reynslumesti skuldabréfasérfræðingur landsins og hefur starfað við stýringu skuldabréfa frá árinu 2002 þegar hún hóf störf hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum.
Nánar12. maí 2017
Sameining sjóða
Fjárfestingarsjóðirnir Stefnir – Eignastýringarsjóður og Stefnir – Samval verða sameinaðir þann 17. maí undir nafni síðarnefnda sjóðsins. Við sameininguna tekur Samval við öllum eignum og skuldbindingum Eignastýringarsjóðs sem í kjölfarið verður slitið.
Nánar30. mars 2017
Fjárfesting í erlendum sjóðum er nú heimil
Við afnám hafta standa einstaklingum og lögaðilum fjöldi erlendra fjárfestingakosta til boða. Stefnir hefur stýrt sjóðum sem fjárfesta á erlendum mörkuðum samfellt í yfir tuttugu ár og státa þeir af góðri ávöxtunarsögu til langs tíma.
Nánar08. mars 2017
Hádegisverðarfundur um stjórnunarhætti fyrirtækja á Norðurlöndum - Hvað fer í raun fram?
Stefnir ásamt Viðskiptadeild HR, Rannsóknarmiðstöð HR í stjórnarháttum, Deloitte og LOGOS bjóða til hádegisverðarfundar þann 10. mars um samanburð á stjórnarháttum Norrænna fyrirtækja, þar á meðal Íslands.
Nánar31. janúar 2017
Lykilupplýsingablöð verðbréfa- og fjárfestingarsjóða hafa verið uppfærð
Öll lykilupplýsingablöð sjóða hafa verið uppfærð á síðum viðkomandi sjóða. Lykilupplýsingarnar draga fram aðalatriði útboðslýsinga sjóða.
Nánar25. janúar 2017
Jóhann G. Möller er nýr forstöðumaður hlutabréfa hjá Stefni
Jóhann G. Möller hefur verið ráðinn forstöðumaður hlutabréfa hjá Stefni. Jóhann hefur starfað samfleytt á fjármálamarkaði frá árinu 2001 á sviði eignastýringar og ráðgjafar.
Nánar18. janúar 2017
Ávöxtun sjóða Stefnis 31.12.2016
Hér má nálgast samantekt á ávöxtun sjóða í stýringu Stefnis m.v. 31.12.2016.
Nánar02. desember 2016
SF IV slhf. afhendir hluti í Skeljungi til hluthafa
Nú er lokið vel heppnuðu hlutafjárútboði Skeljungs hf. þar sem SF IV slhf, félag í rekstri Stefnis, seldi m.a. 23,5% hlut í Skeljungi. Mikil eftirspurn var eftir hlutum í útboðinu en alls var seldur 31,5% hlutur í Skeljungi á 6.9kr. pr. hlut, en það eru efri mörk verðbils útboðsins.
Nánar07. október 2016
SÍA III, framtakssjóður í rekstri Stefnis, fjárfestir í félagi sem verður eigandi fasteignar og rekstrar Marriott EDITION hótelsins við Austurhöfn
Fjármögnun á byggingu Marriott EDITION hótels sem rýsa mun við Austurhöfn 2 við hlið Hörpu er lokið og ráðgert er að hótelið opni í lok árs 2018.
Nánar07. október 2016
Samruni sjóða
Stjórn Stefnis hf. hefur tekið ákvörðun um að Stefnir – Ríkisvíxlasjóður sameinist Stefni – Ríkisbréfasjóði óverðtryggðum þann 17. nóvember næstkomandi. Hlutdeildarskírteinishafar Stefnis Ríkisvíxlasjóðs munu fá útgefin ný hlutdeildarskírteini í Stefni – Ríkisbréfasjóði og í kjölfarið verður fyrr nefnda sjóðnum slitið.
NánarHér er að finna myndmerki Stefnis.
Windows notendur geta hægrismellt á myndina og valið skipunina "Save Picture As..." úr listanum. Macintosh notendur geta smellt á myndina og dregið hana út á skjáborðið.
Til að vista merkið í betri upplausn er smellt á myndina, þá opnast stærri mynd.