Frétt
15. ágúst 2012Arnar Ragnarsson ráðinn í teymi sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni.
Arnar Ragnarsson ráðinn í teymi sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni.
Arnar Ragnarsson mun innan skamms hefja störf hjá Stefni í teymi sérhæfðra fjárfestinga. Arnar mun taka þátt í að leiða framtaksfjárfestingar innan Stefnis og mun meðal annars koma að stýringu á Stefni Íslenska Athafnasjóðnum.
Arnar hefur starfað í Arion banka og forverum hans frá árinu 2002. Áður en hann hóf störf í Arion banka starfaði hann m.a. hjá Eignarhaldsfélagi Hagkaupa og Icelandair. Hann starfaði sem sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf til ársins 2009 og þar á meðal í starfsstöð bankans í Stokkhólmi árin 2007-2008. Frá 2009 til 2011 gegndi Arnar stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar og hefur frá árinu 2011 verið forstöðumaður viðskiptaþróunar Arion banka. Undanfarin ár hefur hann einkum unnið að stefnumótandi verkefnum ásamt því að sitja í fjárfestingaráði bankans og í stjórn nokkurra dótturfélaga hans, þar á meðal Valitor, Okkar líftrygginga og Eignabjargs.
Arnar er með B.Sc. próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og MBA frá INSEAD í Frakklandi.
Til bakaArnar hefur starfað í Arion banka og forverum hans frá árinu 2002. Áður en hann hóf störf í Arion banka starfaði hann m.a. hjá Eignarhaldsfélagi Hagkaupa og Icelandair. Hann starfaði sem sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf til ársins 2009 og þar á meðal í starfsstöð bankans í Stokkhólmi árin 2007-2008. Frá 2009 til 2011 gegndi Arnar stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar og hefur frá árinu 2011 verið forstöðumaður viðskiptaþróunar Arion banka. Undanfarin ár hefur hann einkum unnið að stefnumótandi verkefnum ásamt því að sitja í fjárfestingaráði bankans og í stjórn nokkurra dótturfélaga hans, þar á meðal Valitor, Okkar líftrygginga og Eignabjargs.
Arnar er með B.Sc. próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og MBA frá INSEAD í Frakklandi.
Fleiri fréttir
02.júlí 2024
Stefnir – Arðgreiðslusjóður greiðir arð til sjóðfélaga í fjórða sinn
Stefnir - Arðgreiðslusjóður hs. greiðir í dag út arð til 774 sjóðfélaga sjóðsins og nam arðgreiðsluhlutfall 4,1 kr. á hlut eða 4,8% af heildarstærð sjóðsins...
27.maí 2024
Nýr sjóður Stefnis gefur út 4,2 ma. kr. skuldabréf
Sérhæfði sjóðurinn SEL I hs.,hefur gefið út höfuðstólstryggt skuldabréf (SEL 1 27 12) sem verður skráð á First North í sumar.
15.janúar 2024
100% afsláttur af sjóðum til 5. febrúar
Í tilefni af verkefninu Konur fjárfestum er engin þóknun við kaup á sjóðum Stefnis frá 12. janúar til og með 5. febrúar 2024. Afslátturinn af þóknun gildir við...