Frétt
Stefnir er aðili PRI
Stefnir hefur undirritað reglur þess efnis að innleiða og vinna eftir reglum PRI, helsta málsvara ábyrgra fjárfestinga á heimsvísu.
Með undirritun reglnanna staðfestum við sem stofnanafjárfestar að við búum við skyldur þess efnis að vinna að langtíma hagsmunum okkar haghafa. Samkvæmt umboðsskyldu okkar trúum við að umhverfisþættir, félagslegir þættir og stjórnarhættir (UFS e. ESG) geti haft áhrif á frammistöðu eignasafna (þó með mismunandi hætti eftir félögum, geirum, heimssvæðum, eignaflokkum og með tíma). Við gögnumst einnig við því að með innleiðingu þessara reglna getum við samstillt hag fjárfesta með heildar markmiðum samfélagsins. Þess vegna, þar sem við getum og innan okkar umboðsskyldu munum við skuldbinda okkur samkvæmt þessum reglum:
- Við munum taka tillit til UFS málefna við mat á fjárfestingarkostum og við fjárfestingarákvarðanir.
- Við munum vera virkir eigendur fjármagns og innleiða UFS málefni í eigendastefnu okkar og við framkvæmd hennar.
- Við munum sækjast eftir viðeigandi upplýsingum um UFS málefni hjá þeim fyrirtækjum sem við fjárfestum í.
- Við munum stuðla að því að þessar reglur PRI verði viðurkenndar og þeim framfylgt í fjárfestingarstarfsemi.
- Við munum vinna saman til að auka hæfni okkar til að framfylgja reglunum.
- Við munum öll gera grein fyrir okkar framgangi við innleiðingu reglnanna.
Frekari upplýsingar um ábyrgar fjárfestingar má nálgast hér.
Þann 14. september sl. undirritaði Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis reglur PRI fyrir hönd félagsins.
Á myndinni er einnig Fiona Reynolds, framkvæmdastjóri PRI.
Fleiri fréttir
09.janúar 2025
Framtakssjóðurinn SÍA IV kaupir meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf.
Samkomulag hefur náðst á milli hluthafa Internets á Íslandi hf. (ISNIC) og SÍA IV slhf., framtakssjóðs í rekstri Stefnis og að meirihluta í eigu lífeyrissjóða...
27.desember 2024
Engin upphafsþóknun af kaupum í sjóðum til og með 10. janúar
Engin upphafsþóknun er við kaup í sjóðum Stefnis frá 27. desember 2024 til og með 10. janúar 2025. Afslátturinn af þóknun gildir við kaup sem eiga sér stað í...
21.nóvember 2024
Stefnir leitar að áhættustjóra
Stefnir leitar að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingi í starf áhættustjóra með reynslu og þekkingu á verðbréfamörkuðum innlendum sem erlendum.