Frétt
07. nóvember 2011SRE I kaupir fasteignina við Þingvallastræti 23 á Akureyri
SRE I kaupir fasteignina við Þingvallastræti 23 á Akureyri
SRE I, félag í rekstri Stefnis hf., hefur keypt fasteignina við Þingvallastræti 23 á Akureyri sem hýsir Icelandair Hotel Akureyri. Seljandi fasteignarinnar er Þingvangur ehf. Eigendur SRE I eru margir af stærstu stofnanafjárfestum landsins.
Húsið er 3.600 fm. að stærð og var upphaflega byggt árið 1969. Eignin hýsti áður Iðnskólann á Akureyri og síðar Háskólann á Akureyri en húsið var endurbyggt og stækkað á síðasta ári. Þarna reka Icelandair Hotels nú glæsilegt heilsárshótel með góðum veitingastað og frábærri aðstöðu fyrir ferðamenn allt árið. Sérstakt stolt staðarins er fallegur garður sem sumarferðalangar jafnt sem skíðafólk getur látið fara vel um sig og er leigusamningurinn til 20 ára. Eignin er miðsvæðis á Akureyri við hlið sundlaugar og tjaldsvæðis bæjarins og státar af einstöku útsýni yfir Eyjafjörð, Vaðlaheiði og Hlíðarfjall. Alls eru herbergin 63 talsins en að auki verða opnuð 37 gistiherbergi næsta vor.
SRE I er fyrsti framtakssjóður Stefnis sem sérhæfir sig í fjárfestingum í íslensku atvinnuhúsnæði. Framundan er mikil endurskipulagning á eignarhaldi atvinnuhúsnæðis hér á landi og hyggst Stefnir vera í fararbroddi í því ferli, líkt og í fjárfestingum sem tengjast endurskipulagningu á íslenskum fyrirtækjum.
Þórhallur Hinriksson, sjóðstjóri hjá Stefni: „Megináhersla fasteignateymis Stefnis verður að fjárfesta í vel staðsettu atvinnuhúsnæði sem er í langtímaleigu til traustra leigutaka. Fjárfesting í fasteigninni við Þingvallastræti 23 fellur vel að þeim markmiðum. Fasteignateymi Stefnis hf. hefur að undanförnu leitað leiða til að auðvelda stofnanafjárfestum aðkomu að fasteignafjárfestingum, bæði fjárfestingum í eigin fé og skuldafjármögnun. Hlutfall atvinnuhúsnæðis af heildareignum stofnanafjárfesta á Íslandi er umtalsvert lægra en við sjáum í löndum umhverfis okkur. Mikil tækifæri eru til fjárfestinga á markaði fyrir atvinnuhúsnæði, hvort tveggja í kaupum á húsnæði og eins í eignatryggðri fjármögnun með útgáfu verðtryggðra skuldabréfa“.
Frekari upplýsingar veita:
Flóki Halldórsson framkvæmdastjóri Stefnis hf. - floki.halldorsson@stefnir.is.
Þórhallur Hinriksson sjóðstjóri - thorhallur.hinriksson@stefnir.is.
Til bakaHúsið er 3.600 fm. að stærð og var upphaflega byggt árið 1969. Eignin hýsti áður Iðnskólann á Akureyri og síðar Háskólann á Akureyri en húsið var endurbyggt og stækkað á síðasta ári. Þarna reka Icelandair Hotels nú glæsilegt heilsárshótel með góðum veitingastað og frábærri aðstöðu fyrir ferðamenn allt árið. Sérstakt stolt staðarins er fallegur garður sem sumarferðalangar jafnt sem skíðafólk getur látið fara vel um sig og er leigusamningurinn til 20 ára. Eignin er miðsvæðis á Akureyri við hlið sundlaugar og tjaldsvæðis bæjarins og státar af einstöku útsýni yfir Eyjafjörð, Vaðlaheiði og Hlíðarfjall. Alls eru herbergin 63 talsins en að auki verða opnuð 37 gistiherbergi næsta vor.
SRE I er fyrsti framtakssjóður Stefnis sem sérhæfir sig í fjárfestingum í íslensku atvinnuhúsnæði. Framundan er mikil endurskipulagning á eignarhaldi atvinnuhúsnæðis hér á landi og hyggst Stefnir vera í fararbroddi í því ferli, líkt og í fjárfestingum sem tengjast endurskipulagningu á íslenskum fyrirtækjum.
Þórhallur Hinriksson, sjóðstjóri hjá Stefni: „Megináhersla fasteignateymis Stefnis verður að fjárfesta í vel staðsettu atvinnuhúsnæði sem er í langtímaleigu til traustra leigutaka. Fjárfesting í fasteigninni við Þingvallastræti 23 fellur vel að þeim markmiðum. Fasteignateymi Stefnis hf. hefur að undanförnu leitað leiða til að auðvelda stofnanafjárfestum aðkomu að fasteignafjárfestingum, bæði fjárfestingum í eigin fé og skuldafjármögnun. Hlutfall atvinnuhúsnæðis af heildareignum stofnanafjárfesta á Íslandi er umtalsvert lægra en við sjáum í löndum umhverfis okkur. Mikil tækifæri eru til fjárfestinga á markaði fyrir atvinnuhúsnæði, hvort tveggja í kaupum á húsnæði og eins í eignatryggðri fjármögnun með útgáfu verðtryggðra skuldabréfa“.
Frekari upplýsingar veita:
Flóki Halldórsson framkvæmdastjóri Stefnis hf. - floki.halldorsson@stefnir.is.
Þórhallur Hinriksson sjóðstjóri - thorhallur.hinriksson@stefnir.is.
Fleiri fréttir
20.júní 2025
Stefnir leitar að sérfræðingum í áhugaverð störf
Leitað er að einstaklingum með brennandi áhuga á sjóðastýringu og íslensku atvinnu- og efnahagslífi. Um er að ræða starf sérfræðings í almenn störf innan...
03.júní 2025
Stefnir og HILI hefja samstarf um fyrsta íbúðasjóð Íslands í sameignarformi
Stefnir hf. hefur gert samstarfssamning við HILI með það að markmiði að opna aðgang að nýjum eignaflokki fyrir fjárfesta með því að fjárfesta í vönduðum...
15.apríl 2025
Engin upphafsþóknun eða lágmarkskaup í sjóðum Stefnis
Stefnir hefur fellt niður upphafsþóknun vegna viðskipta í sjóðum félagsins þegar viðskipti eiga sér stað í gegnum Arion appið eða netbanka þar sem ekkert...