Frétt

20. mars 2012

SF1 tryggir fjármögnun á kaupum á meirihluta Sjóvár

SF1 tryggir fjármögnun á kaupum á meirihluta Sjóvár
SF1, sem er í rekstri Stefnis hf, dótturfélags Arion banka, hefur tryggt fjármögnun á kaupum á 834.481.001 hlutum í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. („Sjóvá“), sem samsvarar 52,4% af hlutafé félagsins. Fjármögnunin er hluti kaupsamnings milli Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. („ESÍ“) og SF1 sem gerður var í lok söluferlis sem hófst í janúar á síðasta ári og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur haft umsjón með. Kaupsamningurinn er háður skilyrðum um tiltekin atriði, þ.á m. samþykki Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins og stjórnar ESÍ, en vonast er til að afhending geti átt sér stað innan þriggja mánaða.

Stærstu eigendur SF1 eru Gildi lífeyrissjóður, SVN eignafélag ehf. (félag í eigu Síldarvinnslunnar hf.), SÍA I (fagfjárfestasjóður undir stjórn rekstrarfélagsins Stefnis, en eigendur SÍA I eru meðal annars stærstu lífeyrissjóðir landsins), Frjálsi Lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 (LSR), Stapi Lífeyrissjóður og fagfjárfestasjóðurinn Stefnir ÍS-5. Aðrir eigendur SF1 eru Festa lífeyrissjóður, EGG ehf, (í eigu Ernu Gísladóttur), Arkur ehf. (í eigu Steinunnar Jónsdóttur), Lífeyrissjóður bænda, Sigla ehf. (í eigu Tómasar Kristjánssonar og Finns Reyrs Stefánssonar) og Draupnir fjárfestingafélag ( í eigu Jóns Diðriks Jónssonar). Kaupin eru að fullu fjármögnuð með eiginfjárframlögum og fer enginn hluthafanna með stærri hlut en sem svarar til 10% hlutdeildar í Sjóvá. Stefnir hf., sem leiddi kaupsamningsferlið fyrir hönd kaupanda, er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem rekur innlenda og alþjóðlega verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði fyrir einstaklinga og fagfjárfesta. Ráðgjafar kaupanda í ferlinu eru fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og lögmannsstofan Lex.

Sjóvá er alhliða vátryggingafélag með rúmlega 28% markaðshlutdeild og um 70 þúsund viðskiptavini. Hjá félaginu starfa um 200 manns og er félagið með starfsemi um allt land. Á síðasta ári voru eigin iðgjöld Sjóvár um 10,9 milljarðar króna. Þeir aðila sem standa að baki SF1 stefna að því að halda áfram góðum rekstri Sjóvár en fyrirhugað er að skrá fyrirtækið á hlutabréfamarkað innan fárra ára.
Til baka

Fleiri fréttir

15.janúar 2024

100% afsláttur af sjóðum til 5. febrúar

Í tilefni af verkefninu Konur fjárfestum er engin þóknun við kaup á sjóðum Stefnis frá 12. janúar til og með 5. febrúar 2024. Afslátturinn af þóknun gildir við...

29.ágúst 2023

Stefnir birtir fjármagnaðan útblástur gróðurhúsalofttegunda

Stefnir stýrir fjármunum fyrir hönd viðskiptavina sinna og leggur ríka áherslu á að gera það með ábyrgum og gagnsæjum hætti.

09.ágúst 2023

Stefnir styrkir Einvígið á Nesinu

Stefnir er stoltur styrktaraðili Einvígisins á Nesinu. Þetta árið hlaut Félag áhugafólks um Downs-heilkennið styrk Stefnis og Birgir Björn úr GK var sigurvegari...