Frétt

17. janúar 2014

Nýir eigendur hafa tekið við Skeljungi

Nýir eigendur hafa tekið við Skeljungi
SF IV slhf., félag í rekstri Stefnis hf., hefur gengið frá kaupum á Skeljungi og tekið við félaginu. Ný stjórn hefur verið kosin en hana skipa þau Benedikt Ólafsson, Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, Ingi Guðjónsson, Jón Diðrik Jónsson (stjórnarformaður) og Katrín Helga Hallgrímsdóttir. Eigendur SF IV eru Arion Banki, Draupnir-Sigla, Einarsmelur, Festa Lífeyrissjóður, Gildi Lífeyrissjóður, Íscap, Kaskur, PB 1, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, SÍA II, Sjóvá, Stapi lífeyrissjóður, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, VÍS, sjóðir í rekstri Stefnis auk nokkurra lykilstarfsmanna Skeljungs. SÍA II, framtakssjóður í rekstri Stefnis, er stærsti einstaki hluthafi félagsins með um 24% hlut, lífeyrissjóðir eru með um 30% hlut, fjármálafyrirtæki og sjóðir um 25% og einkafjárfestar um 21%.
Um Skeljung

Skeljungur var stofnaður árið 1928 og rekur um 100 afgreiðslustöðvar undir vörumerkjunum Orkan og Shell. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 starfsmenn. Þá selur félagið fyrirtækjum um allt land olíu og tengdan varning. Félagið á um 35 fasteignir sem eru samtals um 23.000 fermetrar.

Um SÍA II

SÍA II er framtakssjóður í rekstri Stefnis hf. Hluthafar SÍA II samanstanda af lífeyrissjóðum, fjármálafyrirtækjum og fagfjárfestum. Framtakssjóðir á vegum Stefnis hafa verið leiðandi í framtaksfjárfestingum á Íslandi og hafa, ásamt meðfjárfestum, fjárfest fyrir yfir 20 milljarða í óskráðum félögum frá árinu 2011.

Til baka

Fleiri fréttir

15.janúar 2024

100% afsláttur af sjóðum til 5. febrúar

Í tilefni af verkefninu Konur fjárfestum er engin þóknun við kaup á sjóðum Stefnis frá 12. janúar til og með 5. febrúar 2024. Afslátturinn af þóknun gildir við...

29.ágúst 2023

Stefnir birtir fjármagnaðan útblástur gróðurhúsalofttegunda

Stefnir stýrir fjármunum fyrir hönd viðskiptavina sinna og leggur ríka áherslu á að gera það með ábyrgum og gagnsæjum hætti.

09.ágúst 2023

Stefnir styrkir Einvígið á Nesinu

Stefnir er stoltur styrktaraðili Einvígisins á Nesinu. Þetta árið hlaut Félag áhugafólks um Downs-heilkennið styrk Stefnis og Birgir Björn úr GK var sigurvegari...