Stjórnarhættir
Stjórn Stefnis hefur tileinkað sér góða stjórnarhætti og hefur einsett sér að stuðla að og styðja við ábyrga hegðun og fyrirtækjamenningu innan Stefnis til hagsbóta fyrir alla hagsmunaaðila félagsins.
Rannsóknarmiðstöð um góða stjórnarhætti við Háskóla Íslands staðfesti í janúar 2012 að Stefnir væri fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum og hefur Stefnir hlotið endurnýjun viðurkenningarinnar árlega frá árinu 2012.
Heimildir
Þær leiðbeiningar sem stjórn Stefnis fylgir við gerð stjórnarháttayfirlýsingu og í daglegu starfi stjórnar eru eftirfylgjandi:
Leiðbeiningar 6. útgáfa, gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq OMX Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins.
Meginreglur OECD um stjórnarhætti
Gefnar út af OECD 2015.